Leiknir Stolt Breiðholts

04.09.2008 17:26:23 / leiknir

4. september

Æfing í dag klukkan 19:00

Allir með pung að mæta, leikur á morgun

» 7 hafa sagt sína skoðun

22.08.2008 19:45:28 / leiknir

Æfing 24. ágúst kl 20

Jæja drengir nú er tími til að hrista af sér slenið og hunskast á knattspyrnuæfingu. Nokkrir leikir eftir og klárum þetta með stæl. Æfing á sunndaginn kl 20:00.

Væri virkilega gaman að sjá menn eins og Bobba, Hrein Ágúst, Egil, Úlfar, Haffa, Val og Stebba Hilmars.

Hunskist á æfingar helvítis gúrkurnar ykkar og hlaupið af ykkur áfengisvímuna.

kv. Robbi Arnþórs

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 11:13:31 / leiknir

Leikurinn gegn Haukum

Það lítur út fyrir að leikurinn verður svo færður eftir allt saman og verður hann sennilega spilaður á morgun miðvikudag klukkan 17:00. Það á eftir að staðfesta þetta hjá KSÍ og ég læt ykkur vita um leið og það verður. Ef að hann verður færður er æfing í kvöld klukkan 19:00 og það verða allir að mæta.

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 20:40:25 / leiknir

æfing á fimmtudag klukkan 21:00

Næsta æfing er á fimmtudag klukkan níu/21:00 og er það síðasta æfing fyrir leikinn á móti Aftureldingu sem verður á föstudag.
Sínum nú smá vilja og mætum þessar rúmar 4 vikur sem eftir eru vel og klárum sumarið með stæl.

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.07.2008 20:53:57 / leiknir

Næsta æfing

Næsta æfing er á þriðjudag klukkan 19:00. Skyldumæting.

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.07.2008 19:19:26 / leiknir

Æfing á sunnudag

Nú þurfum við að rífa okkur upp af rassgatinu og fara að æfa til að ná árangri. Næsta æfing er á sunnudaginn klukkan 20:00. þetta gæti verið síðasta æfing fyrir leikinn gegn Fjölni.

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 20:07:06 / leiknir

Æfing 4 júli

Æfing föstudaginn 4 júli kl 17:30

Frí laugardag og sunnudag en æfing á mánudaginn kl 19 og leikur gegn Grindavík/Njarðvík á þriðjudaginn.

Sýnum metnað og mætum á æfingar, við mættum 4 á æfing í dag fimmtudag!!!!!!!

» 10 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 11:50:50 / leiknir

Sköpum stemningu á föstudag

Strákar, það mæta allir á þennan leik og skapa stemningu í stúkunni!

Fjölskylduskemmtun
Á LEIKNISVELLI FÖSTUDAGSKVÖLD


Í tengslum við leik Leiknis og Hauka!

Ókeypis grillaðar pylsur og gos í boði fyrir Leiknisfólk! Andlitsmálning fyrir börnin.

Allt Leiknisfólk er hvatt til að mæta og taka vini og fjölskyldu með! Pylsurnar verða orðnar sjóðandi heitar klukkutíma fyrir leik. Upphitun hefst klukkan 19:00 og leikurinn sjálfur 20:00.

Það kostar aðeins þúsundkall inn fyrir alla fjölskylduna saman!

Mætum í Leiknislitunum og myndum alvöru stemningu á leiknum. Það er algjör skyldumæting!

Sjáumst klukkan 19:00 á Leiknisvelli á föstudag!
Breiðið út boðskapinn!
Breiðið út boðskapinn!

Meistaraflokksráð.


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 23:02:58 / leiknir

Hópur á morgun

Þeir sem mæta eru:
Eyjó
Bobbi
Bjarki
Hreinn
Luca
Binni
Óttar
Valur
Aron
Úlli
Óli Ben
Haffi
Hjalti
Óðinn
Danni
Orri

Mæting klukkan 11:30 á Leiknisvöll

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 20:31:46 / leiknir

Framhaldið

Næsta æfing er á sunnudag klukkan 20:00 svo er á mánudag klukkan 18:00 og líklegast leikur í Keflavík á þriðjudag.

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 00:44:58 / leiknir

Æfing á fimmtudag

Æfingin á fimmtudag verður klukkan 18:00 vegna leiks Stjörnunnar og Leiknis í meistaraflokki.

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 14:58:57 / leiknir

EM-leikur Leiknis 2008

Nú styttist í Evrópumótið í knattspyrnu og því ætlum við í Leikni að vera með smá leik í kringum keppnina eins og á EM 2004 og HM 2006.

Það kostar 1.500 kr. að vera með í leiknum en hann er til styrktar mfl. Leiknis þannig að 750 kr. af fjárhæðinni rennur beint til félagsins, 500 kr. af henni rennur til stigahæsta aðilans í lok keppninnar og 250 kr. til næst hæsta aðila keppninnar (að frádregnum 10.000 kr. sem fór í vinning fyrir stigahæsta aðilann eftir riðlakeppnina – 5.000 kr. sem átti að fara í vinninga og 5.000 kr. sem átti að renna til Leiknis)

Leikurinn er mjög einfaldur, en það eina sem þarf að gera er að vista skjalið hér að neðan til sín (hægri smella á það og velja Save Target As...), fylla það út og senda á leiknireuro2008@gmail.com þegar því er lokið.

Aðeins þarf að fylla inn í gulu reitina í skjalinu og þá uppfærist staðan í riðlunum sjálfkrafa. Þegar þau úrslit eru komin inn, þá sést hvaða lið mætast í 8 liða úrslitum og þá þarf að fylla inn þau úrslit o.s.frv. þar til Evrópumeistararnir eru fundnir.

Hver og einn má skila eins mörgum ágiskunum og hann vill svo lengi sem hann borgar þátttökugjaldið fyrir hverja úrlausn.

Á EM 2004 voru 30 manns með í leiknum og á HM 2006 voru 66 manns með í leiknum. Í ár stefnum við enn hærra, látið þetta því berast til vina og vandamanna!

Ingi Freyr Arnarsson vann HM-leikinn 2006 og hlaut hann því 33.000 kr. í vinning. Jóhann Halldórsson lenti í 2. sæti og fékk hann 16.500 í sinn hlut.

Fólk getur búið til aukakeppnir í kringum þetta, hópað sig saman og stigahæsti aðilinn í hópnum fær einhver verðlaun...þetta er bara hugmynd sem menn geta útfært sjálfir. Auðvelt er að halda utan um svona aukakeppnir í Excel-skjalinu sem búið er að búa til með úrlausnum hvers og eins.

Skilafrestur er til kl 16:00 þann 4. júní nk. (engar undantekningar!)

Endilega kynnið ykkur allar reglur leiksins, sem er að finna í skjalinu hér að neðan...

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SKJALIÐ


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 11:00:39 / leiknir

Æfing Sunnudag

Æfingin á morgun sunnudag verður klukkan 15:00 og það er skyldumæting á hana.

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 19:27:36 / leiknir

Hópurinn á morgun gegn fylki

Þeir sem mæta á morgun klukkan 17:45 á Leiknisvöll eru: Eyjó Bjarki Jonni Luca Orri Óttar Aron FUEGO Aron Örn Óli Hrannar Danni Hannes Lárus Hannes Axels Óðinn Hreinn Bobbi Leikurinn er klukkan 19:00

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21
Klukkan